Orri Hauksson, stjórnarformaður Isavia, segir í viðskiptaþætti Jóns G. að mjög mikilvægt sé að æðra dómstig skeri úr um kröfu Isavia á hendur flugvélaleigufyrirtækinu ALC vegna vanskila WOW og að það verði að fá botn í þetta mál fyrir dómstólum. Hann á jafnvel von á að málið verði tekið fyrir í Landsrétti eftir helgi; á mánudag.
Hann segir að nokkur lönd; eins og Ísland, Bretland, Kanada séu með lög sem heimili að taka hald í loftförum, óháð því hvort viðkomandi loftfar hafi átt þátt í að skapa þann kostnað og skuldir sem hafa hrannast upp. „Nún er um þetta deilt,“ segir Orri.
„Það er mikilvægt að fá úrskurð um þetta mál. Það verður að ríkja skilningur og festa á því hver sé löggjöfin; en hún er alls ekki eins í öllum löndum.“
Orri tók við stjórnarformennsku í Isavia fyrir um mánuði síðan eða eftir að WOW varð gjaldþrota.
Jón G. spyr Orra meðal annars hvernig það hafi eiginlega getað gerst að WOW hafi fengi að safna upp svo miklum skuldum við Isavia, eða um 2 milljörðum króna, á meðan aðrir viðskiptavinir Isavia og keppinautar WOW hafi orðið standa í skilum í hverjum mánuði.
Orri svarar því til að lengi vel hafi menn eygt „eitthvert ljós við enda ganganna“ í aðgerðum stjórnenda WOW við að bjarga félaginu, eins og meðal annars viðræðurnar við Indigo.