Innri kompás í ákvörðunartöku, nýsköpun í stjórnun, hugafarsbylting og raðfrumkvöðlar í Stjórnandanum.
Stjórnandinn er þáttaröð á þriðjudagskvöldum á Hringbraut / Ný þáttaröð þar sem talið er niður í Viðurkenningarhátíð FKA.
Í síðasta þætti fékk Hulda Bjarnadóttir þær Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Maríönnu Magnúsdóttur og Þórey Vilhjálmsdóttur Proppé í myndver.
Brjóstvitið hefur áhrif á ákvörðunartöku.
„Við vorum svolítið alin upp í virkni við systkinin (...) Við vorum kannski ekki beint látin æfa okkur í að halda ræður en nánast,“ rifjar Guðrún Hafsteinsdóttir eigandi Kjörís ehf. upp þegar hún lítur til baka til bernskunnar og ræða þær Hulda og Guðrún um alla þá hatta sem við erum gjarnan með í fámennu landi. Þær fara stuttlega yfir ferilinn hennar Guðrúnar, stjórnhætti, hvernig brjóstvitið hefur áhrif á ákvörðunartöku og hve mikilvægt það er oft að hlusta meira og tala minna.
Forvitni, auðmýkt og heilindi?
Maríanna Magnúsdóttir umbreytingaþjálfari hjá Manino fór yfir nýsköpun í stjórnun, sjálfbær teymi, hugafarsbyltinguna sem við erum að fara í gegnum að hennar mati. ,,Erum við að nálgast hlutina af forvitni, af auðmýkt og heilindum?“ spyr Maríanna og ræðir mikilvægi þess að gera tilraunir.
Raðfrumkvöðlar eru töff!
„Það að hafa verið að starfa í módelbransanum fyrir tuttugu árum síðan skiptir máli fyrir mig í dag. Það er líka ástæðan fyrir því að ég er mikill femínisti og nokkuð róttæk í jafnréttismálum,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé stofnandi og eigandi hjá Empower sem hefur tekið flugið með jafnréttið sem útflutningsvöru. „Stjórnendur eru að leita af tækjum og tólum til að vinna með jafnréttismálin segir Þórey og bætir við að fyrirtæki og stofnanir séu loksins tilbúin að fjárfesta í jafnréttismálum.
Þórey býr að fjölbreyttri reynslu sem stjórnandi og verið sýnileg í frumkvöðlaumhverfinu „Samkvæmt skilgreiningunni um raðfrumkvöðull þá er ég líklega raðfrumkvöðull sem er mjög töff!“ segir Þórey glöð í bragði þegar hún fjallar um fjölbreyttan feril og hve ólík verkefni hún hefur tekið að sér og lært mikið á leiðinni eins og að eiga og reka módelskrifstofu sem gæti ekki verið ólíkara því sem hún er að gera í dag.
Sjá má þáttinn hér:
Stjórnandinn þáttaröð á þriðjudagskvöldum á Hringbraut kl. 21.30.
#fka #fkaviðurkenningarhátíðin2021 #hringbraut