Steinunni boðið á stefnumót: „Tókst að kalla mig lesbískan dverg, negra og ADHD sjúkling á innan við tíu mínútum“

Steinunn Radha hefur þurft að upplifa mikla fordóma hér á landi. Hún er tvítug verður oft fyrir ótrúlegum fordómum vegna útlits síns. Hún var ættleidd frá Indlandi átta mánaða gömul, er dökk á hörund og áberandi lágvaxin.

Hún lýsir nýjasta atvikinu á Twitter:

„Hitti gaur sem tókst að kalla mig lesbískan dverg, negra og ADHD sjúkling á innan við tíu mínútum á niðrandi hátt um helgina með þeim rökum að hann væri svo mikill empath,“ segir hún. „Þetta var víst viðreynslutilraun hjá honum. sendi mér seinna morguninn eftir EINS OG EKKERT SÉ EÐLILEGRA.“

Bauð maðurinn henni í mat, bíó eða eitthvað annað.

Inga nokkur spyr hvernig maður sem þetta fái svona óbilandi sjálfstraust að bjóða Steinunni á stefnumót eftir þetta. Steinunn veit það: „Með því að vera aldrei oppressed as in jaðarsettir þannig að það bitni samfélagslega á þeim örugglega.“