Steinunn Ýr Einarsdóttir, formaður kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, varar við því að það þurfi samþykki beggja foreldra fyrir því að bólusetja barn.
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, læknir og verkefnisstjóri hjá embætti landlæknis, sagði á upplýsingafundi Almannavarna að forsvarsmenn barna fengju tilkynningu á næstu dögum um að börnunum stæði til boða að fá bólusetningu.
Ef forsvarsmaður barns er einn þá ræður hann því hvort að barnið verður bólusett. Ef forsvarsmenn eru tveir verður það aðeins bólusett ef báðir forsvarsmenn eru sammála því. Ef ekkert svar berst verður barn ekki bólusett. Kamilla hvatti fólk því til að svara tilkynningunni.
Steinunn segir á Twitter að þetta fyrirkomulag sé ekki í lagi:
„Í mörg ár barðist ég við barnsfaðir minn um að barnið okkar færi á ADHD lyf (ásamt kennurum, læknum og skólahjúkrunarfr.) en hann neitaði þar til nýlega. Foreldrið sem neitar hefur allt valdið. Þetta er ekki í lagi,“ segir hún.
„Ég vil líka taka fram að ofbeldismenn nýta svona glufur í kerfinu óspart. Þeir eru ekki að hugsa um hag barnsins heldur bara að sýna vald sitt og gera þolendum þeirra lífið erfiðara. Mun foreleldri sem neitar bólusetningu vera skylt að taka ábyrgð t.d á einangrun með barninu?“
Hún segir að afleiðingarnar af þessu hafi verið skelfilegar:
Afleiðingarnar fyrir barnið mitt eru skelfilegar. Hann neitaði og sáði efa og hræðslu. Hún er 12 ára og ég græt öll árin sem hún hefur misst úr námi, félagstengslum og þroska.
— Steinunn Ýr (@steinunn_yr) January 5, 2022