Steinunn ver aldursmun í samböndum: „Pössum okkur á fordómum“

Margir hafa gagnrýnt harðlega að enginn hafi gripið inn í þegar Elísabet Ormslev var 16 ára í sambandi við mun eldri karlmann. Hefur það leitt til mikilla umræðna á samfélagsmiðlum um að mikill aldursmunur í samböndum sé hreint ekki í lagi.

Það eru þó ekki allir sammála því, þar á meðal Steinunn Ýr Einarsdóttir, formaður kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, sem segir á Twitter:

„Ofbeldisfólk nýtir aðstöðumun til að beita ofbeldi. Aðstöðumunurinn getur verið fjárhagur, menntun, uppruni, aldur og margt fleira. Aðstöðumunurinn er ekki ofbeldið heldur þeir sem beita ofbeldinu. Pössum okkur á fordómum.“

Hún segir umræðuna á Twitter vera orðna sorglega:

„Mér finnst sorglegt að sjá fólk ósjálfrátt setja = milli aldursmunar fullorðninna sambands og ofbeldis með það í huga að það yngra sé hið kúgaða. Yngri maður getur beitt eldri konu ofbeldi og öfugt. Aldur getur verið vald sem hægt er misnotað en ekki öll gera!,“ segir hún og bætir við:

„Ósjálfsráð fordæming á ástarsamböndum fullorðinna án þess að vita neitt annað en aldur þeirra eru fordómar. Og fordómar eru alltaf skaðlegir. Þeir blinda okkur m.a sýn þegar yngri aðilinn er ofbeldisaðilinn í sambandinu.“