Steinunn var rúmliggjandi mánuðum saman eftir COVID-19 smit

Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor Háskóla Íslands og prófessor í sálfræði, var rúmliggjandi í nokkra mánuði eftir að hafa veikst illa af COVID-19. Steinunn ræddi þetta og fleira til í viðtali í þættinum Fram og til baka á Rás 2 um helgina. Fjallað er um viðtalið á vef RÚV.

Kórónuveirufaraldurinn hefur sem betur fer verið í rénun hér á landi undanfarnar vikur eins og fjöldi smita að undanförnu er til vitnis um. Flestir þeirra sem hafa greinst með veiruna hafa sloppið tiltölulega vel frá henni en svo eru dæmi um þá sem veikst hafa hastarlega. Steinunn er í þeim hópi.

Í þættinum kom fram að hún hafi veikst síðastliðið haust. Hún er enn að glíma við eftirköst veikindanna en er kominn á fætur eftir að hafa verið rúmliggjandi svo mánuðum skiptir.

„Að vera svona veikur í marga mánuði eftir að vera fullfrískur, það er bara svakalegt,“ segir hún meðal annars í viðtalinu og bætir við að það sé nauðsynlegt að halda í bjartsýnina. Gera þurfi ráð fyrir að þetta sé eitthvað sem gengur yfir en það taki tíma.

Til marks um þá vanlíðan sem fylgdi veikindunum segir Steinunn að eftir þriggja mánaða legu í rúminu hafi hún getað legið frammi í stofu. Þoldi hún lítið áreiti.

„Maður sá alveg að börnin höfðu áhyggjur og fannst erfitt að sjá mömmu sína líða illa. En það góða við að vera veikur á þessum tíma er að það voru allir heima, allt mjög rólegt og ekkert að gerast. Þannig að við tókum þennan tíma í að koma mér á lappir og það er að takast.“

Hægt er að hlusta á viðtalið við Steinunni hér en í því taldi hún einnig upp fimm fyrirmyndir sem hafa haft áhrif á líf hennar.