Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fyrrverandi fjölmiðlakona, lofsyngur Verbúðina á Facebook-síðu sinni en síðasti þátturinn í þessari vinsælu seríu var sýndur í gærkvöldi.
Steinunn kveðst þakklát fyrir það að listamennirnir í Vesturporti hafi rifið ofan af því djúpa sári sem kvelur Íslendinga og þeirri sáru skömm sem við berum í hjarta okkar.
„Skömm á því fólki sem lét þetta gerast, skömmina yfir því að selja það sem var allra fyrir skyndigróða, skömmina yfir því að missa lífsviðurværi úr sjávarplássum hringinn í kringum landið, skömmina yfir því að hafa verið plötuð svo rækilega, skömmina yfir því hvernig farið var með foreldra okkar og vini, skömmina yfir því að hafa þegið og þurfa sumstaðar enn á Íslandi að vera með óbragð yfir því að þiggja brauðmola úr vösum landráðamanna. Því landráð eru það. Ísland var þessum mönnum ekki nóg, arðrán Samherja heldur áfram en nú hjá fátækum Afríkuþjóðum,“ segir Steinunn Ólína.
Hún segir að listamenn hafi nú lagt sitt lóð á vogarskálina með rækilegri áminningu og ungt fólk á Íslandi spyrji nú spurninga sem það hefði ekki gert ella. Spyr hún hverjir ætli nú að taka við keflinu.
„Því eitt er víst að sitjandi ríkisstjórn mun ekkert gera. Enginn áhugi á stjórnarskrárbreytingum. Ofbeldið og arðránið heldur áfram. Stórútgerðin mengar mest, græðir mest en greiðir minnst af gróðanum til samfélagsins. Svandís Svavarsdóttir ætlar nú að herða ennfrekar að strandveiðinni. Ekki mun þessi ,,græni“ flokkur setja nein viðurlög við mengandi starfsemi íslenskra stórútgerðarfyrirtækja sem eru enn með Dalvík og Akureyri í gíslingu. Þar sem skömmin er hvað megnust. Dalvík og Akureyri eru meiddir laxar í kvíum Samherja.“
Steinunn Ólína segir að nú sé komið að íslensku þjóðinni að láta að sér kveða.
„Enn sitjum við uppi með skömmina. Þurfum við ekkert að skila ÞESSARI skömm? Nú þarf íslenska þjóðin að fara að opna munninn, segja frá, segja okkur sögurnar af því hvernig þetta var og er og skila þessari skömm. Því ofbeldi var það og ofbeldi er það þegar fólk er svift lífsviðurværi sínu og sameign okkar færð í einkaeign ósvífinna manna sem ALDREI fá nóg og láta sér í léttu rúmi liggja að halda þjóðum í ofbeldisfullri ánauð.“
Hún segir að lokum að íslenska þjóðin sé einstæða móðirin, sem Kristín Þóra Haraldsdóttir lék, sem Harpa, leikin af Nínu Dögg Filippusdóttur, bar út í lokaþættinum í gærkvöldi. „Stórkostleg mynd af vandamálinu sem um ræðir.“