„Það er ósvífið að nota tækifærið og hækka verð á innlendri matvöru þegar verð á innfluttri vöru hækkar vegna heimsástands. Siðferði íslenkra framleiðenda býður þeim sumsé að græða á stríðinu Í Úkraínu,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fjölmiðlakona.
Steinunn gerir orð Auðar Ölfu Ólafsdóttur, verkefnastjóra verðlagseftirlits ASÍ, í viðtali við Vísi að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Í viðtalinu sagði hún það meðal annars skjóta skökku við að matvöruverslanir væru að hækka verð á vörum á sama tíma og tilkynnt hafi verið um margra milljarða króna hagnað hjá þessum sömu fyrirtækjum.
Steinunn Ólína segir að stjórnvöld beri einnig mikla ábyrgð á þessari stöðu.
„Svandís Svavarsdóttir vildi fella niður VSK á matvöru en það finnst Bjarna vond hugmynd því allt sem er til hagsbóta fyrir almenning þó í stuttan tíma sé er tap í hans augum. Hvað eiga neytendur að gera? Hætta að kaupa innlendar vörur og mótmæla þannig eða hvað?“