Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fjölmiðlakona, minnist Jónínu Benediktsdóttur vinkonu sinnar í fallegri færslu á Facebook-síðu sinni.
Eins og Hringbraut greindi frá í morgun varð Jónína bráðkvödd á heimili sínu í Hveragerði í gær. Jónína var 63 ára, fædd 26. mars 1957.
„Stórveldið og kvenskörungurinn Jónína Benediktsdóttir er fallin frá. Samferðakona okkar og framtíðar Íslendingasagnapersóna. Við supum marga fjöruna saman við Jónína og þrátt fyrir að ég hefði það stundum á orði við hana að hún þyrfti að ráða sér betri leikstjóra í lífinu þá hef ég fáa þekkt raunbetri og hjartahlýrri en þessa mögnuðu, djörfu og síungu stelpu,“ segir Steinunn sem minnist hlátraskallanna og góðverkana sem Jónína stærði sig aldrei af.
„Við höfum misst frá okkur litríka og margslungna konu og ég á eftir að sakna hennar mikið úr mínu lífi og samfélaginu öllu. Afhverju deyr allt litríka og skemmtilega fólkið frá okkur? Við drappaða pakkið sitjum eftir... og verðum að reyna að láta ekki okkar eftir liggja. Börnum, barnabörnum, fjölskyldu og vinum Jónínu sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Mikill er missir ykkar og okkar allra.“