Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fjölmiðlakona, biðlar til fólks að hafa augun hjá sér vegna listaverks sem er í eigu hennar en er nú týnt.
Steinunn birti færslu á Facebook-síðu sinni og mynd af verkinu.
„Ég lánaði kvikmyndafyrirtæki þetta málverk eftir Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur en það týndist í hamaganginum eins og oft vill verða í stórum pródusjónum. Mig langar hins vegar ekki að glata því, því einhvers staðar er það og mér þætti vænt um ef einhver hefur rekist á það eða er með það í sínum fórum að skila því til mín,“ segir Steinunn Ólína sem biðlar til þeirra sem hafa upplýsingar um málið að senda henni skilaboð.
„Mér þykir vænt um þessa mynd sem var í eigu foreldra minna og hefur fylgt mér síðan ég var stelpa.“