Steinunn Ó­lína með jarð­skjálfta­á­skorun á hand­óða prjónara

Leik­konan Steinunn Ó­lína Þor­steins­dóttir skorar á hand­óða prjónara að prófa nýtt peysu­munstur. Þetta má sjá í skemmti­legri færslu inni á Face­book hópnum Hand­óðir prjónarar.

Þar er Gunnar Freyr Steins­son fyrstur til þess að birta mynd af jarð­skjálfta­mælingu á mynd Veður­stofu Ís­lands. Jarð­skjálftar enda í deiglunni eftir í­trekaðar hrinur á Reykja­nesi og mögu­legt eld­gos.

„Jæja, hver verður fyrst að prjóna þetta nýja peysu­mynstur?“ spyr Gunnar. „Á­skorun,“ skrifar Steinunn Ó­lína undir við miklar undir­tekir prjónara eins og sjá má hér að neðan.