Baráttan um formannsstöðuna hjá Eflingu er í algleymingi og ljóst að eitthvað mun láta undan þegar kosið verður síðar í þessum mánuði.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fjölmiðlakona, er dyggur stuðningsmaður Sólveigar Önnu Jónsdóttur sem býður sig fram að nýju eftir að hafa látið af embættinu í október síðastliðnum.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segir hún mikilvægt að félagsmenn Eflingar geri sér grein fyrir mikilvægi þess að Sólveig Anna nái aftur völdum í félaginu.
„Ég vona að félagar innan Eflingar átti sig á valdastöðu sinni í samfélagi okkar. Þetta eru ekki örfáar hræður því félagsmenn skipta þúsundum. Þetta fólk knýr hjól atvinnulífsins!
Án þeirra og þeirra vinnuframlags væri samfélag okkar lamað. Þau eru grunnstoðirnar! Og okkur ber að standa með þeim og kröfum þeirra. Því ef á þeim er traðkað ætti ekkert mannsbarn að sofa rótt.“
Steinunn Ólína segir mikilvægt að Eflingarfólk standi vörð um sína hagsmuni og velji sér formann sem hræðist ekki átök og hefur krafta til að standa í víglínunni. Þar sé enn sem komið er aðeins um eina manneskju að ræða.
„Sólveigu Önnu sem er óhrædd, óbilgjörn, óttast ekki óvinsældir baráttu sinnar fyrir hönd sinna félagsmanna og hún er ekki til sölu. Slíkir eiginleikar eru sjaldséðir í okkar samfélagi!
Eflingarfólk ætti því óhrætt að velja hana til forystu því hún hefur sýnt að henni er alvara og er ekki á framabraut heldur ætlar sér að bæta kjör lægst launaða en jafnframt valdamesta fólks landsins. Eflingarfólk þið verðið að kjósa! Ykkar er valdið!“