„Sá sem fer í fýlu ef hann fær ekki að vera leiðtogi á ekki að vera leiðtogi,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fyrrverandi ritstjóri, á Facebook-síðu sinni.
Steinunn Ólína gerir tíðindi helgarinnar úr íslenskri pólitík að umtalsefni en eins og kunnugt er ákvað Guðlaugur Þór Þórðarson að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem fram fer um næstu helgi.
Bjarni Benediktsson sagði í fréttum RÚV í gær að hann stjórnmálaferli hans væri lokið ef svo færi að hann tapaði fyrir Guðlaugi Þór í formannsslagnum.
„Ég sé ekki fyrir mér að stíga til hliðar sem formaður og fara að berjast á þeim forsendum að vera þingmaður eða ráðherra. Þannig að ef það er vilji flokksmanna þá virði ég það,“ sagði Bjarni.
Steinunn Ólína gefur Bjarna ekki háa einkunn fyrir þessa afstöðu.
„Þessi afstaða BB segir allt því sem segja þarf og ætti að auðvelda valið í komandi formannsslag. Honum er alveg sama um allt nema það að vera aðal,“ segir Steinunn Ólína og bætir að lokum við: „Engin prinsipp, engar hugsjónir, bara valdasýki.“