Leik- og fjölmiðlakonan Steinunn Ólina Þorsteinsdóttir kemur með lausn á kjaradeilu verkafólks í dag en hún hefur staðið þétt við bakið á Sólveigu Önnu formanni Eflingar í gegnum deiluna.
Félagsmenn Eflingar á Íslandshótelum hófu verkfall í gær en um 300 meðlimir Eflingar starfa á Íslandshótelum.
„Ég er með tillögu að lausn á kjaradeilu verkafólks sem starfar hjá Íslandshótelum. Mér finnst hún frekar sanngjörn og eiginlega dálítið upplögð í ljósi sögunnar,“ skrifar Steinunn.
„Íslenska þjóðin gaf nefnilega Íslandshótelum 642 milljónir kr. með svokölluðum uppsagnastyrk árið 2020. Við vorum reyndar ekki spurð hvort við vildum vera svo rausnarleg við Íslandshótel en þetta gerðum við samt og féið tekið af okkar sameiginlega auði. Sameiginlegum auði okkar landsmanna. Á sama tíma greiddu eigendur Íslandshótela sér 600 milljónir kr. í arð. En það þykir auðvitað dónaskapur að velta því fyrir sér hvað fólk gerir fyrir gjafafé. Svo sögðu þeir upp ríflega 500 manns.,“ bætir Steinunn við.
Að hennar mati er nú komið að skuldadögum hjá Íslandshótelum.
„Núna gætu Íslandshótel hæglega þakkað íslensku þjóðinni fyrir sig, því við gerðum þeim kleift að lifa af Covid og þeir hafa af þeim sökum haldið áfram að græða og geta nú greitt sér arð sem telur ekki milljónir heldur milljarða. Íslandshótel þurfa ekkert að greiða þjóðarstyrkinn til baka, það væri frekja, bara ganga að hóflegum kröfum þessarar fámennu stéttar ,tæplega 300 manns, sem berjast nú fyrir aðeins bættum kjörum.“
„Þá munar ekkert um það og það myndi sýna okkur þjóðinni sem bar Íslandshótel á höndum sér í gegnum Covid að þeir skilji að þeir standa í þakkarskuld við okkur og samfélagið okkar sem vill ekki að verkafólk sem vinnur erfiðisvinnu á hótelum þeirra sé haldið í sárafátækt.Islandshótel myndu líka með því sýna samfélagslega ábyrgð sem er alltaf smart move fyrir fyrirtæki. Íslandshótel gætu að auki sannað að starfsfólk þeirra er metið að verðleikum og að á sanngjarnar kröfur þeirra er hlustað á sama hátt og íslenska þjóðin svaraði kalli Íslandshótela á erfiðum tímum,“ skrifar Steinunn.