Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, fjölmiðlakona og leikkona, segir að hatursorðræða verði ekki upprætt í starfshópum heldur með mannúðlegri stefnu stjórnvalda í málefnum þeirra sem hingað koma.
Steinunn Ólína gerir þá ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra að skipa starfshóp gegn hatursorðræðu að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Verður hópnum meðal annars falið að gera tillögur um aðgerðir sem miða að því að vinna gegn hatursorðræðu i samfélaginu.
Steinunn Ólína hefur litla trú á starfshópum sem þessum og sendir Katrínu skýr skilaboð hvað þetta varðar.
„Vinsamlegast sparaðu þér og okkur ómakið Katrín. Þetta er gjörsamlega ótrúverðugt og menningarsnautt snakk. Það er ekki hægt að boða eitt en gera annað. Þú stjórnar ríkisstjórn sem er skipuð hræddum, kúltúrlausum og þjóðernissinnuðum dómsmálaráðherra og því miður hefur það sýnt sig að þú ert litlu skárri og kannski bara versti og þröngsýnasti heimalningurinn sjálf. Þín ríkisstjórn opnar allar æðar fyrir geisandi útlendingaandúð og fyrir það verður þín minnst sem og glimrandi menntaskólaframsögu um nákvæmlega ekki neitt.“