Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Halldór sagði þar að verkföll Eflingar væru tilgangslaus þar sem engir samningafundir væru boðaðir en tilgangur verkfalla væri að knýja fólk að samningsborðinu.
„Ríkissáttasemjari boðaði samningafund í síðustu viku og Efling neitaði að mæta á þann fund. Þetta skiptir algeru höfuðatriði í þessari umræðu. Vegna þess að tilgangur og eðli verkfalla er til þes að knýja samningsaðila sinn til gerðar kjarasamnings en það eru engir fundir í þessari deilu,“ bætti Halldór við.
Hann sagði að það eina sem aðilar væru að bíða eftir væri úrskurður Landsréttar. „Þegar sá úrskurður liggur fyrir þá liggur fyrir hver verður framvinda þessarar vinnudeilu,“ sagði Halldór.
Halldór vill meina að Efling sé að hagnast á ólögmætu ástandi með því neita af afhenda félagaskránna en héraðsdómur hefur sagt tillöguna lögmæta og atkvæðagreiðsla eigi að fara fram.
„Þau eru að tefja deiluna og eru í verkföllum á sama tíma,“ sagði Halldór.
Ef það fer svo að félagsmenn samþykki miðlunartillöguna þá er það ígildi kjarasamnings.
Halldór sagði að ef ekki verður samið mun íslenskt samfélag lamast næstu helgi en þá sérstaklega út af verkfalli olíubilstjóra. En bæði venjulegt fólk og fyrirtæki eru mjög háð olíu.
Leik- og fjölmiðlakonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hæðist hins vegar að Halldóri á Facebook.
„Íslenskt samfélag lamast fyrr úr hlátri Halldór Benjamín! Grunnþjónusta verður alltaf tryggð eins og í öllum verkföllum. Það er ekkert óttast Íslenskur ferðaþjónustuiðnaður sem HB hefur augljóslega mestar áhyggjur af mun áfram og óháð verkföllum, hafa það orð á sér að þjónustu sé ábótavant, að verðlag sé í engu samhengi við gæði, og hver er ástæðan? Ástæðan er sú að þeir launagreiðendur sem stríða nú við launþega sína eru að drepast úr græðgi og fúski sem er allt hér að lama! Ég krefst þess að HB hljóti nafnbótina Hræðslumálaráðherra, okkur munar ekkert um einn gagnslausa ráðherrann til!“ skrifar Steinunn Ólína.