Ragnheiður Valgarðsdóttir, annar trúnaðarmanna starfsfólks Eflingar, veit ekki hvort hún eigi afturkvæmt úr veikindaleyfi fari svo að Sólveig Anna Jónsdóttir verði aftur formaður félagsins. „Ætlar hún að biðja starfsfólkið afsökunar ef hún kemur aftur? Hvernig ætlar hún að koma inn og stjórna vinnustaðnum? Hún verður að biðja starfsfólkið afsökunar á hegðun sinni af því þetta endurspeglar ekki það sem hún ætlast til af fyrirtækjum og stofnunum úti í bæ,“ sagði Ragnheiður meðal annars í viðtali við mbl.is í gærkvöldi.
Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir furðar sig á þessu og spyr í færslu á Facebook:
„Á hverju á Sólveig Anna að biðjast afsökunar?“
Hún heldur áfram:
„Það kemur ekki fram í þessari grein heldur er áfram brigslað um einhverja ógnarstjórn SÖ sem ekkert er skilgreind frekar og aðeins mantrað á meintri óskilgreindri vanlíðan starfsfólks.“
Ragnheiður sagði að Sólveig Anna væri búin að æsa upp félagsmenn og aðra í kommentakerfum til að tala illa um starfsfólkið.
Steinunn Ólína segir hins vegar:
„Efling er stéttarfélag ekki sálgæslufélag og þar þarf leiðtoga en ekki hlýja móður eða andlausan föður. Hlýjuna og nærgætnina þarf starfsfólk Eflingar bara eins og annað launafólk í landinu að sækja annað. Mikið er ég þreytt á þessu rugli að það sé alfarið á annara ábyrgð að fólki líði vel í vinnu og starfi.“