Steinunn miður sín: Getur ekki tekið strætó lengur – „Ég er leið og reið yfir þessu“

Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, sjónvarpskona og baráttukona fyrir réttindum fatlaðra, er í hópi þeirra sem geta ekki ferðast með strætó eftir að nýtt greiðslukerfi var tekið í notkun.

Fréttablaðið fjallar um málið í dag en þar er meðal annars rætt við Steinunni, Unni Helgu Óttarsdóttur, formann Þroskahjálpar og Jóhannes Svanur Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó.

„Ég er leið og reið yfir þessu og hrædd um að það sé verið að skerða frelsið mitt,“ segir Steinunn Ása. Umrætt greiðslukerfi var tekið í notkun fyrir skemmstu og virkar þannig að farsími eða kort er sett upp við skanna í vagninum þegar greitt er fyrir farið. Öryrkjar fá afslátt af Strætó-fargjaldi en til að virkja afsláttinn þurfa þeir að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar, bendir á að stór hópur fólks með þroskahömlun geti ekki fengið rafræn skilríki. Sökum fötlunar geti þau ekki valið lykilorð og megi þau ekki fá aðstoð við það.

Steinunn Ása er sjálf með rafræn skilríki en segist eiga erfitt með að læra á nýja og flókna tækni. „Mér finnst verið að mismuna fólki,“ segir hún. „Ég er vön að taka strætó á hverjum degi en núna get ég það ekki,“ segir hún.

Jóhannes Svanur Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., hefur orðið var við gagnrýni varðandi nýja kerfið sem snúi að öryrkjum og fólki með þroskaskerðingar eða fatlanir. Hann segir að brugðist verði við ábendingunum eftir bestu getu og til að byrja með geti fólk komið í höfuðstöðvar Strætó og keypt strætókort með öryrkjaafslætti.

Frétt Fréttablaðsins í heild sinni.