Óhætt er að segja að færsla Steinunnar Svavarsdóttur í Hundasamfélaginu, tæplega 40 þúsund manna hópi á Facebook, hafi vakið töluverða athygli. Steinunn birti í gærkvöldi myndir af hundinum sínum, henni Monsu, sem skartar nú bleikum hárum og bleiku naglalakki.
Færslan – og myndirnar sem Steinunn birti – hefur vakið talsverða athygli og sitt sýnist hverjum. Sumir vilja meina að um sé að ræða illa meðferð á Monsu en Steinunn þvertekur fyrir það eins og fleiri .
Í samtali við Hringbraut segist Steinunn alveg hafa búist við því að fólk hefði mismunandi skoðanir þegar hún setti færsluna inn. „Það er allt í lagi. Þetta eru viðurkenndir litir fyrir dýrin og mér finnst þetta ekkert öðruvísi en að setja sjampó eða næringu í hundinn,“ segir Steinunn og bætir við að litir sem þessir séu vinsælir erlendis, til dæmis í Bandaríkjunum.
Flestir þeirra sem tjá sig í þræðinum á Hundasamfélaginu finnst uppátæki Steinunnar skemmtilegt.
Einn af stjórnendum Hundaspjallsins sá ástæðu til að minna fólk á að vera kurteist í umræðum. Benti umræddur stjórnandi á – rétt eins og Steinunn – að um væri að ræða viðurkenndar vörur og ekki væri verið að meiða hundinn eða gera honum illt.
Fleiri myndir af Monsu má sjá hér að neðan: