Steini Magg er látinn: „Hef alla tíð dáðst einlæglega að hæfileikum hans“

Gítarleikarinn Þorsteinn Magnússon, betur þekktur sem Steini Magg, er látinn. Hann var 66 ára gamall, en hann fæddist þann 3. október árið 1955. DV greinir frá þessu.

Steini var meðal annars í hljómsveitunum Eik, Þeyr og Bubbi-MX21. Og þá þykir frammistaða hans á afmælistónleikum Bubba Morthens árið 2006 sérstaklega minnisstæð.

Þónokkrir hafa minnst Steina á Facebook. Til að mynda skrifaði blaðamaðurinn Jakob Bjarnar í dag: „Þorsteinn Magnússon gítarvirtúós er látinn. Ég hef alla tíð dáðst einlæglega að hæfileikum hans en Þorsteinn kom víða við sögu, til að mynda hér þar sem hann lyftir öflugum slagara Spilverksins upp í aðrar víddir með mögnuðum rafgítarleik.“

Þá skrifaði tónlistarmaðurinn Einar Vilberg fallega færslu um Steina. „Sorgarfréttir. Einn af okkar allra bestu Gítaristum, vinur minn hann Þorsteinn Magnússon, a.k.a. Steini Magg er látinn. Ég var svo heppinn að Steini tók ljúflega í þá beiðni mína að spila inná Lp plötuna mína „Noise“ á sínum tíma, hvíldu í friði gamli vinur.“