Steingrímur lofar að þvælast ekki fyrir: „Kannski fer mig að kitla í lófana“

Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi forseti Alþingis, segir að hann ætli ekki að þvælast fyrir þeim sem taka við í stjórnmálunum þegar hann hættir endanlega. Steingrímur hefur setið á þingi í næstum fjörutíu ár og örugglega einn umdeildasti stjórnmálamaður síðari tíma.

Hann ræddi um starfslok sín á þingi við Fannar Sveinsson í þættinum Framkoma sem sýndur var á Stöð 2 í gær.

„Þegar ég lít til baka er ég fullkomlega sáttur í sjálfum mér, við þennan feril og kveð þar að leiðandi sáttur og ekki pirraður og argur. Ég er voðalega þakklátur fyrir það að ég get tekið þessa ákvörðun sjálfur og mér líði vel með hana og ég held að þetta sé gott fyrir alla,“ sagði Steingrímur.

„Kannski fer mig að kitla í lófana einhvern tíma næsta vetur þegar ég er að fylgjast með einhverju sem að ég hefði haft skoðanir á og hefði stokkið upp í ræðustólinn ef ég væri enn á þingi.“

Hann lofar samt að verða ekki til vandræða:

„Menn verða að kunna að sleppa. Ég ætla að hætta þegar ég hætti. Ég ætla ekki að vera til vandræða og þvælast fyrir þeim sem að taka við.“