Steingrímur Sævarr Ólafsson, almannatengill og fyrrverandi fréttastjóri, rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar hann hitti stórstjörnu á sundlaugarbarnum við hótel sem hann dvaldi á á Benidorm.
„Fimm ár upp á dag síðan ég sá og hitti Luis Figo, gamla portúgalska knattspyrnugoðið sem spilaði með Barca og Real Madrid, á hótelinu þar sem ég gisti á Benidorm. Sá hann hinu megin við sundlaugina þar sem hann spígsporaði á bakkanum,“ segir hann.
Steingrímur er mikill knattspyrnuunnandi og fylgdist hann vel með portúgalska snillingnum, enda ekki á hverjum degi sem maður deilir sundlaugagarði með stórstjörnu. „Alþýðlegur maður hann Figo. Lék sér við börnin sín, fór í sundlaugina og virtist afslappaður. Alþýðlegur maður að vera svona með okkur pöpulnum á sólarströndu. Figo er maður fólksins. Svo sá ég hann skjótast á sundlaugarbarinn og ég vissi að þarna var tækifærið mitt,“ segir hann.
Steingrímur segir að hann hafi nánast hlaupið á barinn, uns hann stóð við hlið Figo. „Hann leit til hliðar, ég leit á móti og við kinkuðum kolli hvor til annars...svona eins og menn gera hlið við hlið á barnum. Barþjónninn kom að afgreiða og ég benti á Figo, svona „hannvaráundanmér“ bending. Figo var ánægður, þakkaði mér fyrir og ég svaraði að sjálfsögðu kurteislega eins og Íslendinga er siður í útlöndum.“
Ekki leið á löngu þar til Steingrímur og Figo voru farnir að tala um um allt milli himins og jarðar: Veðrið, hótelið og Spán svo eitthvað sé nefnt. Steingrímur segist hafa skipulagt næstu leiki fram í tímann í huganum. „Ég myndi rífa upp gamla VISA nótu og láta hann árita hana og henda síðan símanum mínum í barþjóninn og láta hann taka mynd af okkur félögunum. Ég og Figo. Við vinirnir að fá okkur öllara á Spáni.“
Steingrímur segir að næsta skref hafi verið að fyrirtæki hans, Sævarr slf. tæki að sér PR störf fyrir Figo – að minnsta kosti á Íslandi.
„Mér fannst ég hins vegar verða að kynna mig áður en ég bæði um áritun og hvað þá mynd, og með þá vitneskju í farteskinu að útlendingar eiga afar erfitt með að segja: „Steingrímur Sævarr Ólafsson“ þá rétti ég bara fram lúkuna og sagði „Denni“. Figo tók í hendina á mér og svaraði að bragði „Alberto“.
Steingrímur segir að Luis Figo, hinn eini sanni, hafi væntanlega verið á einhverri lúxussnekkjunni í Miðjarðarhafinu þegar samtalið fór fram. „En Alberto Gonzales, rafvirki frá Valencia, var með mér á hótelinu á Benidorm. Sævarr slf. getur hins vegar mögulega plöggað Alberto ef einhvern vantar rafvirkja á Valencia svæðinu...“