Steingrímur á hlut í Marel en skráði hann ekki í hagsmunaskrá

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og þingmaður til áratuga, hefur átt hlut í Marel um margra ára skeið og er eign hans metin á sjö milljónir króna. Kjarninn greindi frá þessu í morgun en í fréttinni kemur fram að Steingrímur hafi ekki skráð umrædda eign í hagsmunaskrá þingsins fyrr en nýlega.

Lögum samkvæmt þurfa þingmenn að gera ráð fyrir ýmsum hagsmunum í hagsmunaskráningu Alþingis, en þar á meðal er hlutafjáreign. Í frétt Kjarnans kemur fram að Steingrímur hafi ekki gert grein fyrir eign sinn um miðjan maímánuð. Segir Steingrímur að um „athugunarleysi“ hafi verið að ræða af hans hálfu.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, gerir málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og þá einkum þann hlut umfjöllunarinnar sem snýr að birtingu upplýsinga um hluthafa félaga á hlutabréfamarkaði. Í frétt Kjarnans segir:

„Ekki er víst hvort heildarhluthafalistarnir sem notaðir voru til að finna hlutabréfaeign þingmanna verði aðgengilegir í langan tíma, en líkt og Kjarninn fjallaði um á dögunum telur Persónuvernd birtingu þeirra fara gegn lögum.“

Björn Leví bendir á að nýbúið sé að samþykkja breytingar á lögum um ársreikninga, þannig að þeir eru aðgengilegar án endurgjalds.

„Þar vantar að gera það sama við hluthafaskrá, ásamt því að uppfæra þá skrá í rauntíma eða svo. Það þarf að standa vörð um þessa birtingu. Það á ekki að vera persónuverndarmál að opinberir aðilar eigi hlut í fyrirtækjum þó það geti átt við um Jón, Gunnu og Regn. Það er meira að segja mjög einfalt að útfæra það því það er nýbúið að innleiða skráningu á einstaklingum í „áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla“,“ segir Björn Leví sem er þeirrar skoðunar að stjórnmálamenn eigi ekki að geta falið hagsmunatengsl sín af því að þeir gleymdu því að segja frá því.