Það má segja að allt hafi ætlað um koll að keyra á Twitter um helgina þegar Steiney Skúladóttir, rappari og sjónvarps- og leikkona, sagði frá því að hún ætli að fá sér harðparket en ekki viðarparket á íbúðina sína. Steiney er þekkt fyrir skemmtilegar færslur og vakti þessa færsla nokkra athygli.
Í færslunni sagði Steiney:
„Var að segja mömmu að ég ætla að setja harðparket en ekki viðarparket á íbúðina mína því liturinn sem ég vil er 1 milljón kr ódýrari. Svarið hennar "Nei Steiney nú verður þú að ákveða hvernig manneskja þú ætlar að vera".“
Steiney birti svo mynd af báðum tegundum, harðparketið kostar 225 þúsund krónur en viðarparketið kostar 1,3 milljónir.
Hér eru parketin tvö fyrir áhugasama. 225.000 kr vs 1.300.000 kr pic.twitter.com/wfzk9eY1Ry
— Steiney Skúladóttir (@steiney_skula) January 31, 2021
En hvort ætti Steiney að fá sér harðparket eða náttúrulegt viðarparket? Um það virðist vera mjög skiptar skoðanir.
Kom aldrei til greina en að taka harðparket. Miklu sterkara. Upplitast ekki. Var reyndar ekki mikið ódýrara parketið sem við tókum heldur en sams konar viðarparket. Held að fólkið sem er að halda í viðarparket hugmyndina sé fólk sem vaskar upp og á ekki ryksuguvélmenni.
— Árni Torfason (@arnitorfa) January 31, 2021
Alls ekki sambærilegt. Annað er með sál og hitt ekki. Harðparket (sem er gott rebranding á plastparket) er augljóslega búið að taka ótrúlegum framförum en það er samt bara alls ekki sambærilegt náttúrulegu viðarparketi.
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) January 31, 2021
harðparket er parket fyrir venjulegt fólk en viðarparket er parket fyrir efnað fólk eða fólk sem kýs að skulda mikið.
— baldur (@baldursigmunds) January 31, 2021
Parket er svo miiiiiklu meira næs. Ég myndi samt mögulega velja harðparket á íbúð sem ég vissi að ég myndi ekki búa í mjög lengi, til að spara. En svo er þetta eflaust alls konar smekksatriði.
— Dagny Aradottir Pind (@dagnyara) January 31, 2021
Harðparket er bara orðið svo næs, harðparket í dag er allt annað en fyrir 20 árum, ég er mjög sátt við mitt og var með ekta á síðustu íbúð sem var miklu meira vesen og hnútur í maga yfir hverri rispu.. pic.twitter.com/EDPOd5P4Rb
— Vala (Valgerður) Arnadottir (@ValaArna) January 31, 2021
Ég myndi alltaf velja harðparket af því að ég er með hunda. Þeir myndu eyðileggja viðarparketið á svona mánuði
— Inga (Yes Sir I Can) Boogie (@Inga_toff) January 31, 2021
Hundar rispa bara viðarparket, en eyðileggja plastparket. Ef viðarparketið er olíuborið þá er hægt að bleyta þá vel og þá lagast rispurnar.
— Gudrun Thrastar (@GarunTh) January 31, 2021
Og er með harðparket. pic.twitter.com/TSf5mmLp5K
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) January 31, 2021