Steindi á von á að dagurinn í dag fari í sögu­bækurnar: „Við eigum öll eftir að muna hvar við vorum“

Leikarinn og grín­istinn Steindi Jr. á von á góðum tíðindum í dag en hann skýtur á að yfir­völd muni til­kynna að samningur við bólu­efna­fram­leiðandann Pfizer verði opin­beraður í dag.

Þrá­látur orð­rómur hefur verið á kreiki um að Pfizer hafi sam­þykkt að láta Ís­lendingum í té bólu­efni fyrir alla lands­menn. Nokkuð er liðið síðan greint var frá þreifingum um að Ís­land yrði eins­­konar til­­rauna­land fyrir bólu­efni Pfizer. Fyrir­­­tækið myndi þannig tryggja nægt bólu­efni til að hjarðó­­næmi næði að myndast og um leið yrði gerð rann­­sókn á virkni efnisins.

Stjórn­völd hafa lítið vilja gefa út um þetta og sagði Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir síðast í morgun að fólk þurfi að stilla væntingum um mögu­legan samning í hóf. Þór­ólfur ræddi málið í Morgunút­varpi Rásar 2 og sagði að ef samningar náist þurfi þeir sam­þykki margra aðila, til dæmis ráða­manna, vísinda­siða­nefndar og Per­sónu­verndar.

Á for­síðu Morgun­blaðsins í dag er því haldið fram að endan­legrar niður­stöðu um málið sé að vænta í dag eftir fund full­trúa ís­lenskra stjórn­valda með for­svars­mönnum Pfizer.

Margir hafa tjáð sig um málið á Twitter, meðal annars Stein­þór Hróar Stein­þórs­son, Steindi Jr.

„Við eigum öll eftir að muna í fram­tíðinni hvar við vorum þegar Þór­ólfur sagði okkur í beinni út­sendingu, þriðju­daginn 9.feb 2021, að við yrðum öll bólu­sett sem til­rauna­dýr í laugar­dalnum. Allt opnast, allt lagast. Al­gjört appel­sín og lakkrís­rör vibes fram­undan.“

Hag­fræðingurinn Kon­ráð S. Guð­jóns­son spyr á Twitter hvort ein­hver sé með link á Zoom-fundinn með Pfizer. Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra svarar Kon­ráð, bregður á leik og birtir stutt mynd­band úr hinum geysi­vin­sælu grín­þáttum The Office: