„Það fer enginn í gegnum þessa lífsreynslu öðruvísi en að það marki djúp spor í viðkomandi um aldur og ævi. Að fá allan þunga ríkisvaldsins á sig er mjög stórt,“ segir Steinbergur Finnbogason lögmaður í samtali við Fréttablaðið í dag.
Steinbergur skrifar ítarlega grein í blaðið í dag þar sem hann talar um einangrunarvist íslenskra fanga. Mannréttindasamtökin Amnesty International gáfu á dögunum út skýrslu þar sem fram kemur að einangrun sé beitt óhóflega á Íslandi, um sé að ræða vísvitandi pyntingartæki.
Steinbergur starfar sem verjandi grunaðra einstaklinga og hafa skjólstæðingar hans mátt þola einangrunarvist sjálfir meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Hann hefur sjálfur reynslu af því að sitja í einangrun en það gerðist í kjölfar þess að hann var handtekinn 2016 á skrifstofu héraðssaksóknara.
Þangað var hann kominn til að vera viðstaddur skýrslutökur af skjólstæðingi sínum sem var sakborningur í umfangsmiklu peningaþvættismáli. Honum voru síðar dæmdar 1,5 milljón í miskabætur vegna frelsissviptinga og annarra rannsóknaraðgerða lögreglunnar vegna handtökunnar og einangrunarvistarinnar.
„Þetta mál fór nú nokkuð hátt á sínum tíma en ég var settur í þriggja daga einangrunarvist og var á Skólavörðustígnum nokkrum mánuðum áður en fangelsinu var lokað,“ segir Steinbergur í samtali við Fréttablaðið. Hann segir að hann hafi vegna þessarar reynslu látið sig málið varða.
„Það fer enginn í gegnum þessa lífsreynslu öðruvísi en að það marki djúp spor í viðkomandi um aldur og ævi. Að fá allan þunga ríkisvaldsins á sig er mjög stórt,“ segir Steinbergur sem vill að það kerfi sem er hér sé endurskoðað og settar skýrari reglur um það hvenær eigi að einangrunarvista, hvort það eigi yfir höfuð að gera það og svo hversu lengi hún varir.
Nánar er rætt við Steinberg á vef Fréttablaðsins.