Landsfundur Sjálfstæðismanna var settur í gær en kosið verður um nýjan formann á sunnudaginn og keppast þar Bjarni Benediktsson, núverandi formaður og Guðlaugur Þór Þórðarson, orkumálaráðherra um stólinn.
Bjarni Benediktsson flutti stefnuræðu sína í gærkvöldi og eyddi litlu púðri í að gagnrýna mótherja sinn Guðlaug en fór þó mikinn um það að helsti andstæðingur Sjálfstæðisflokksins í næstu kosningum yrði Samfylkingin.
Í grein Fréttablaðsins nefndu tveir prófessorar í stjórnmálafræði þetta sem aðal punkt sinn um ræðuna en það voru þeir Eiríkur Bergmann og Grétar Þór Eyþórsson.
„Hann (Bjarni) gerði Samfylkingunni ansi hátt undir höfði, fannst mér, gerir hana að höfuðandstæðingi Sjálfstæðfilokksins. Það er athyglisvert,“ sagði Eiríkur Bergmann í samtali við Fréttablaðið.
Grétar Þór tók í sama streng og Eiríkur „„Samfylkingin fékk mörg föst skot og það er ekki annað að sjá en að Bjarni sjái þar andstæðing sem rétt sé að gefa gaum,“ segir Grétar Þór. „Þetta er athyglivert er horft er til smæðar flokksins eins og staðan er í dag.“
Eins og kunnugt er situr Kristrún Frostadóttir nú sem nýr formaður Samfylkingarinnar og greinilegt að Bjarni sér þar verðugan andstæðing sem hafa þarf auga með fyrir næstu kosningar.