Mjög fróðlegar umræður eru í þætti Jóns G. í kvöld um stefnumótun og hvernig eigi að innleiða stefnur í fyrirtækjum. Rannsóknir sýna að 95% starfsmanna í fyrirtækjum vita lítið sem ekkert um stefnu fyrirtækja sinna og fær Jón G. stjórnunarráðgjafann Bjarna Snæbjörn Jónsson til sín í þáttinn til að ræða þessi mál.
Bjarni Snæbjörn stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu á næstunni um stefnumótun, stefnur fyrirtækja og ekki síst hvernig eigi að innleiða stefnur og fylgja þeim eftir. Það er ekki alltaf nóg að halda 2ja daga stefnumótunarfund úti á landi þar sem frjóum hugmyndum rignir yfir mannskapinn ef ekkert gerist síða. Vissulega góður pepp-fundur en stefnan má samt ekki týnast í dagsins önn.
Kl. 20:30 í kvöld.