Stefanía Sigurðardóttir, eiginkona Birkis Más Sævarssonar, fyrrverandi landsliðsmanns í fótbolta, segist varla getað orða bundist eftir landsleik Íslands og Albaníu á Laugardalsvelli í gærkvöldi.
Fréttablaðið vakti fyrst athygli á þessu.
„Varð fyrir svo miklum vonbrigðum með óþverrann í stúkunni í kvöld eftir leik. Leikmenn ganga til klefa og fjölskyldur þeirra að bíða eftir að fá að knúsa sína menn “þetta er kærasta XXX, hún er svo ljót” Gott fólk!,“ sagði Stefanía á Twitter-síðu sinni og bætti við að samfélagið þyrfti á samtökum eins og Öfgum að halda.
Færsla Stefaníu vakti talsverða athygli og svöruðu samtökin Öfgar færslunni.
„Þetta er ömurleg kvenfyrirlitning. Við þurfum svo sannarlega að halda áfram í róttækum aktívisma og vinna gegn þeirri þróun að virði kvenna felist í útliti,“ sögðu samtökin og þökkuðu fyrir stuðninginn.
Varð fyrir svo miklum vonbrigðum með óþverrann í stúkunni í kvöld eftir leik. Leikmenn ganga til klefa og fjölskyldur þeirra að bíða eftir að fá að knúsa sína menn “þetta er kærasta XXX, hún er svo ljót” Gott fólk! Samfélagið þarf á @ofgarofgar að halda
— Stebba Sigurðardótti (@StebbaSig) June 6, 2022