Stefanía er fok­reið: Fékk rukkun sem hún kannaðist ekki við – „Karma lífsins mun elta ykkur uppi, svo mikið er víst“

Stefanía Jónas­dóttir, íbúi á Sauð­ár­króki, segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa fengið ó­vænt bréf inn um lúguna frá inn­heimtu­mönnum ríkis­sjóðs þar sem henni var til­kynnt um van­skil.

Stefanía segir í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag að hún hafi hrein­lega komið af fjöllum, enda hafði hún ekki séð um­rædda rukkun. Hún hringdi því til skatt­stjóra Norður­lands vestra til að at­huga málið nánar.

„Ég sagðist ekki hafa fengið þessa rukkun og gæti ekki greitt það sem ég vissi ekki um. Svarið var að rukkunin væri í heima­bankanum, en ég er ekki með heima­banka og sagði ég að ég vildi fá mínar rukkanir á pappír og sendar til mín. En, nei það var ekki hægt.“

Stefanía segist hafa verið heppin að skuldin var ekki hærri og veltir hún því fyrir sér hvort þetta sé ný leið hjá ríkinu til að hala inn vexti og auka­vexti.

„Því að það eru margir af eldri kyn­slóðinni ekki með tölvu, hvað þá heima­banka? Svo hvar eru þessi mann­réttindi sem þið stjórn­völd og yngri kyn­slóðin geltið sí­fellt um? Í mínum huga ber mér ekki að greiða reikning sem ég fæ ekki sendan til mín,“ segir Stefanía sem spyr til hvers við hendum peningum í menntun fólks sem er ó­hæft til starfa.

„Það er allt í ó­reiðu í þessu stjórn­lausa landi okkar. Hvað hendir mann næst, sem maður veit ekki um, bara af því að það er í tölvunni. Ég vil fá mín mann­réttindi og sjálf­stæði á meðan ég get, ekki senda mig vælandi að biðja aðra um hjálp, eins og svar full­trúans var. Hendum ekki fleiri krónum í menntun letingjanna. Það er illa komið fram við eldri kyn­slóðina, en bíðið þið sama fólk og stjórnið í dag, karma lífsins mun elta ykkur uppi, svo mikið er víst. Já ég er reið og leið yfir virðingar­leysinu sem eldri kyn­slóðin verður fyrir,“ segir Stefanía í grein sinn og lætur fylgja með orð­réttan hluta bréfs frá inn­heimtu­mönnum ríkis­sjóðs.

„Gjald­fallin heildar­skuld yðar í opin­berum gjöldum er í dag kr. 1.229. […] Hér með er skorað á yður að greiða ofan­greidd gjöld innan 15 daga frá birtingu greiðslu­á­skorunar í dag­blöðum 16. júlí sl. Auk ó­þæginda sem inn­heimtu­að­gerðir valda, hafa þær í för með sér kostnað fyrir gjaldanda, til dæmis má nefna að kostnaður vegna fjár­náms er nú allt að kr. 25.000, þing­lýsingar­gjald kr. 2.500 og upp­boðs­kostnaður allt að kr. 75.000.“

Stefanía endar grein sína á þessum orðum:

„Já, ég er reið, líka vegna þess að ýmsar stofnanir hins opin­bera senda rukkanir bréf­lega sé þess óskað.“