Stefáni svelgdist á kaffinu þegar hann las ummæli Sveins í Fréttablaðinu

„Ég var mættur á Erni í flugið til Húsavíkur snemma á dögunum. Greip Fréttablaðið með mér á leið út í vél. Rjómablíða og aðstæður góðar í háloftunum til lestrar. Kaffið var gott og í sterkari kantinum. Fyrirsögnin á blaðsíðu sex vakti athygli mína.“

Svona hefst pistill sem Stefán Guðmundsson, Húsvíkingur og Landsbjargarmaður, skrifar í Fréttablaðið í dag. Þar gerir hann viðtal Fréttablaðsins við Svein Halldór Oddsson Zoëga, formann svæðisstjórnar Landsbjargar á Austurlandi, í síðustu viku að umtalsefni. Þar sagðist Sveinn vera hugsi yfir þyrluheimsókn dómsmálaráðherra austur í lok septembermánaðar eftir að óveður hafði gengið yfir svæðið.

Stefán segir að honum hafi þótt þessi virði að lesa þetta, ekki bara einu sinni, heldur tvisvar á leiðinni. Vísar hann í beinar tilvitnanir sem vöktu athygli hans í viðtalinu:

„Menn hefðu kannski verið til í að fara heim til sín eftir átökin frekar en að þurfa að fylgja einhverri sendinefnd.“

„Þar á viðkomandi við óveðrið sem reið yfir landið og afleiðingar þess í lok september og heimsókn ráðherra. En sem kunnugt er ákvað Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og yfirmaður almannavarna að nýta fyrsta tækifæri sem gafst til þess að fljúga austur með þyrlu Landhelgisgæslunnar, ásamt aðstoðarmanni, fulltrúum almannavarna og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Kynna sér aðstæður; eins og ráðherrar og aðrir hlutaðeigandi eiga að gera. Skilyrðislaust,“ segir Stefán.

Hann bætir við að umræddur svæðisstjóri sé augljóslega pirraður í viðtalinu og virðist ekki skilja tilgang ferðarinnar. Hann vitnar í fleiri ummæli sem birtust í fréttinni.

„Væri ekki nær að hæstvirtur ráðherra girti sig í brók og notaði krafta sína og fjármuni ríkisins frekar í að bæta sjálfboðaliðafélögum og einstaklingum í björgunaraðgerðum tjón sem ekki er hægt að tryggja sig fyrir.“

Og hann heldur áfram:

„Ég er meira pirraður á almannavarnakerfinu sem getur ekki bætt björgunarsveitunum upp tjón eins og Vopnfirðingarnir hafa lent í núna.“

Og aftur:

„En það er svo sem alveg jákvætt að menn kynni sér málin og sýni þessu áhuga… Þyrluferð til eða frá er kannski ekki aðalmálið.“

Stefáni virðist hafa verið brugðið við að lesa þessar yfirlýsingar svæðisstjórans.

„Mér svelgdist lítillega á í aðfluginu við þessar tilvitnanir; en sem betur fer var kaffið á enda og stutt í lendingu. Svæðisstjórinn búinn að vera með digrar yfirlýsingar; slá úr og í eins og Ragnar Reykás og ekki nokkur leið að átta sig á öðru en að málið snýst um peninga.“

Stefán tekur fram að Landsbjörg sé afar þýðingarmikið félag sem sinnir gríðarlega mikilvægum hlutverkum til lands og sjávar. Þá njóti það mikillar velvildar hvar sem er á landinu.

„Undirrituðum þykir það fullkomlega ósamboðið fulltrúa Landsbjargar á Austurlandi að vera hugsi yfir einhverri fjandans þyrluferð með Gæslunni; sem var fyrst og síðast ætluð til þess að hans eigin yfirmenn, hvort sem um var að ræða ráðherra dómsmála og yfirmann almannavarna og eða fulltrúa Landsbjargar, gætu kynnt sér ástandið tímanlega og frá fyrstu hendi. Það veit ekki á gott þegar landsbyggðin kvartar undan „sjaldséðum“ fulltrúum ríkisstjórnarinnar við slík tilefni; en er svo „hugsi“ yfir því þegar þeir mæta eftir bestu getu á ögurstundu. Það eitt að æðsti yfirmaður Landhelgisgæslunnar og ráðherra landsins alls, nýti þyrluna til slíkra mikilvægra ferða er ekki merkilegra en ef borgarstjórinn tæki strætó á leið 13 til að kanna með hamfarir innan borgarinnar. Hvorugt mun hafa áhrif á fjárhag Landsbjargar; nema til góðs.“