Stefáni boðin sýra í gær: Vininum hefndist illilega fyrir 15 þúsund kallinn

Stefán Pálsson sagnfræðingur segir frá athyglisverðum samskiptum sem hann átti við ónefndan mann í gær. Stefán er býsna virkur á Twitter þar sem hann segir oft skemmtilega frá hlutunum.

„Hvernig var ykkar mánudagur? Minn var fínn. Mér var t.d. boðið að smakka sýru í fyrsta sinn. Þáði reyndar ekki en það hefði gert þessa vikubyrjun örlítið áhugaverðari en ella. Sá sem bauð var hins vegar grjótharður á að sýra væri ekki fyrir ungmenni heldur þroskaðar sálir,“ segir Stefán í röð af tístum sem hann birti í gærkvöldi.

„Minn maður var nýkominn úr fangelsi. Útskýrði prinsip sín varðandi innbrot: opinberar stofnanir og einkaheimili eru off limits. Þangað ferðu ekki. Fyrirtæki eru fair game. Allt væri betra ef menn fylgdu þessari reglu,“ segir hann.

Stefán segir að maðurinn trúi einnig á karma. Þannig hafi fanginn fyrrverandi sagt honum frá strák sem hann hefði hjálpað á Litla-Hrauni. Sá launaði honum með því að stela af honum fimmtán þúsund krónum. „En hann hirti ekki um að hefna sín, vissi að karma myndi ná honum. Það gekk eftir,“ segir Stefán og bætir við að svikuli vinurinn hafi ætlað að heimsækja stelpu en farið húsavillt.

„Bankaði uppá hjá Degi borgarstjóra, rétt oní skotárásina. Var skellt í gæsluvarðhald. Við húsleit fundust efni svo viðkomandi rauf skilorð - kominn aftur á Hraunið. Hefndist fyrir 15 þúsundkallinn.“