Stefán vill breyta Austurvelli: „Nákvæmlega ekkert brilljant við skipulag mikilvægasta almenningsgarð Íslands“

Stefán Pálsson sagnfræðingur og samfélagsrýnir lýsir yfir óánægju sinni með núverandi skipulag Austurvallar. Hann vill eyða háum fjárhæðum í hönnunarsamkeppni um nýjan Austurvöll. Þetta segir hann í færslu á Facebook síðu sinni.

Hann segir Íslendinga hreinlega orðna vana lélegu skipulagi Austurvallar: „Árið 2023 verður núverandi hönnun og útlit Austurvallar sextíu ára. Það er nákvæmlega ekkert brilljant við skipulag þessa mikilvægasta almenningsgarðs Íslendinga - við erum bara orðin vön þessu,“ segir Stefán.

Hann vill efna til hönnunarsamkeppni hið snarast svo nýr Austurvöllur geti orðið að veruleika strax eftir tvö ár: „Væri ekki vel til fundið að ráðast núna í hönnunarsamkeppni um nýjan Austurvöll sem gæti orðið að veruleika 2023?“

Stefán segir Austurvöll mikilvægasta vettvang mótmælafunda á landinu: „Við hönnunina mætti taka mið af nýjum húsum sem risið hafa meðfram vellinum og þeirri staðreynd að Austurvöllur er búinn að taka við af öðrum torgum sem mikilvægasti vettvangur hvers kyns mótmælafunda, án þess að skipulag hans taki nokkurt mið af slíku.“

Hann vill fá fagfólk í verkið: „Setjum myndarlega upphæð í hönnunarsamkeppni sem gæfi teymum fagfólks færi á að skila inn hugmyndum sem gætu orðið frábærar,“ segir Stefán.

Hann vill umbylta skipulagi Austurvallar og leggur til áhugaverða hugmynd: „Er til dæmis eitthvað lögmál að Jón Sigurðsson standi þarna í miðjunni (og raunar ekki alveg í miðjunni ef út í það er farið)?“