Stefán Pálsson sagnfræðingur varpaði athyglisverðri hugmynd fram á Facebook-síðu sinni í morgun. Leggur hann til að ríkið kaupi Bændahöllina svokölluðu en við það gæti farið af stað keðjuverkun sem yrði mörgum til góða.
Gefum Stefáni orðið:
„Vestur á Melum stendur risastórt hótel galtómt. Húsnæðið öskrar á mikið og kostnaðarsamt viðhald og meira að segja í miðri túristabólunni var reksturinn meira í ætt við Axlar-Björn en Jóhannes á Borg. Mikið þarf að gerast til að þetta hótel opni aftur og hætti að verða eigenda sínum, Bændasamtökunum, þung byrði.“
Stefán bendir á að á sömu þúfu vilji Háskóli Íslands byggja hús fyrir menntavísindasviðið sitt sem er nú uppi á Rauðarárholti. Segir Stefán í hálfkæringi að þar þrífist enginn nema útburðir og American Style.
„Auðvitað vilja kennaranemarnir og kennarakennararnir (hvað annað eigum við að kalla þau) komast í Vatnsmýrina til að geta frílystað sig á kaffihúsum og komist fljótt í innanlandsflug. Vandinn er hins vegar sá að Háskólahappdrættið þarf að setja alla sína peninga næsta áratuginn í að byggja yfir heilbrigðisvísindasviðið á Landspítalareitnum.
Hvað gera bændur þá?
Jú, bændur lesa þessa færslu og labba í kjölfarið yfir ganginn til varaformanns Framsóknarflokksins og stinga upp á eftirfarandi fléttu: ríkissjóður kaupir Bændahöllina. Bændur finna sér hentugra húsnæði annars staðar á höfuðborgarsvæðinu sem mætti t.d. kalla Stefánsból eða e-ð álíka í þakklætisskyni fyrir snjöllu hugmyndina.
Ríkið skrallar meira og minna öllu út úr Bændahöllinni og fyllir af kennaranemum og kennarakennaraskrifstofum og á samt fullt af plássi eftir fyrir nýjar námsbrautir í núvitund og tokkarísku.“
Stefán segir að þá losni hús Kennaraháskólans sem er stórt og með miklum uppbyggingarmöguleikum steinsnar frá Tækniskólanum sem í dag er rekinn á tveimur stöðum.
„Ef við myndum spyrja verknámsfólkið á Skólavörðuholti: „hvort viltu kúldrast hér í bílastæðaleysinu umvafinn tilgerðarlegum kaffihúsum eða flytja upp á Rauðarárholt og komast alltaf á Stælinn í hádeginu?“ - þá þarf enginn að velkjast í vafa um svarið.
Þegar búið verður að sameina HÍ og Tækniskólann með þessari snjöllu fléttu geta allir glaðst nema kannski fjármálaráðuneytið og Jóhannes Þór Skúlason, sem sér á eftir öllum hótelherbergjunum á Melunum. En þá kemur rúsínan í pylsuendanum: Iðnskólahúsið á Skólavörðuholti stendur þá laust og yrði osom hótel fyrir vellríka túrista sem vilja upplifa svifryk og hljóðmengun á gamlárskvöldi!
Tjaldið fellur, áhorfendur ærast.“