Stefán segir heil­brigðis­ráð­herra skítsama um fólk í neyslu: „Fólk sem ekki má vera til, má bíða“

Stefán Ingvar Vig­fús­son, sendir Willum Þór Þórs­syni heil­brigðis­ráð­herra pillu í nýjumbak­þönkum sínum í Frétta­blaðinu í dag eftir að ráð­herra á­kvað að fresta frum­varpi sínu af­glæpa­væðingu fíkni­efna og stofna um það starfs­hóp.

„Ég er mjög heppinn. Ég er heppinn að hafa aldrei verið hand­tekinn með fíkni­efni, þegar ég neytti þeirra. Ég er heppinn að hafa haft löngun til þess að hætta neyslu þeirra. Ég er heppinn að hafa haft öruggt hús­næði á meðan ég beið eftir því að komast inn á Vog og ég er heppinn hafa ekki þurft að bíða lengi. Ég er heppinn að hafa haft stuðning for­eldra minna þegar ég út­skrifaðist þaðan. Þessi heppni heitir öðru nafni for­réttindi,“ skrifar Stefán.

„Ég þekki fólk sem er ekki eins heppið, fólk sem er í dag­neyslu fíkni­efna og hefur ekki allan þann stuðning sem ég hafði til þess að verða edrú. Fólk sem hefur mátt þola harð­ræði og orðið fyrir á­föllum sem það deyfir með neyslu. Þetta fólk má ekki vera til á Ís­landi, það er ó­lög­legt. Þegar þau óska eftir læknis­að­stoð hjá neyðar­línunni er lög­reglan gjarnan send á staðinn, lög­reglan sem þau óttast. Lög­reglan sem tekur af þeim efnin þeirra, lög­reglan sem læsir þau inni. Þetta fólk má ekki vera til,“ bætir hann við.

Þeir sem glíma við fíkn þurfa því að forðast lög­regluna til árs­loka þar sem frum­varp Willums verður ekki lagt fram fyrr en á haust­þingi.

„Niður­staða ríkis­stjórnarinnar er sú að það er of flókið mál, með því meina þau auð­vitað að þeim er sama. Þeim er sama um þetta fólk sem má ekki vera til. Og í vikunni frestaði heil­brigðis­ráð­herra nýju frum­varpi um af­glæpa­væðingu neyslu­skammta fram á haust. Vorið er ný­gengið í garð. Þetta fólk sem ekki má vera til má bíða þangað til. Kannski fá þau einn daginn full­trúa í ríkis­stjórn. Kannski. Nú­verandi heil­brigðis­ráð­herra er í öllu falli skít­sama um heil­brigði þeirra,“ skrifar Stefán að lokum.