Stefán segir ekkert liggja á: „Ekki neyðarástand sem kallar á einhvern asa“

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir í skriflegu svari til Vísis að það verði ekki auglýst eftir nýjum fréttastjóra fyrr en um áramót þegar Rakel Þorbergsdóttir lætur af störfum.

Rakel sagði upp í nóvember eftir átta ára setu í stóli fréttastjóra, Heiðar Örn Sigurfinnsson verður starfandi fréttastjóri frá og með 1. janúar þangað til að búið er að ráða nýjan fréttastjóra, hann var meðal umsækjenda þegar Rakel fékk stöðuna árið 2014.

Það eru margir áhugasamir um stöðuna enda valdamikil í þjóðfélagsumræðunni, meðal þeirra sem ætla að sækja um er Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður.

„Rakel er ekki hætt, hún sinnir starfi sínu sem fréttastjóri til áramóta og í kjölfarið verður auglýst eftir fréttastjóra,“ segir í svari Stefáns til Vísis. Kolbrún Vaka Helgadóttir, upplýsingafulltrúi RÚV, endurtók það sem kom fram í tilkynningu RÚV og vísaði svo á útvarpsstjóra. Stefán svaraði svo: „Tímasetningin er skýr og miðast við starfslokin sem eru um áramótin. Það að stjórnandi láti af störfum er ekki neyðarástand sem kallar á einhvern asa, í þessu eins og öllu öðru hjá RÚV vöndum við til verka.“