Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir að sagan sýni að Sjálfstæðismönnum sé ekki treystandi til að hafa almannahag að leiðarljósi við sölu bankanna. Hann segir að nú sé rétti tíminn til að eiga bankana áfram því með þeim sé hægt að greiða niður skuldir ríkisins vegna COVID-faraldursins.
Stefán skrifar pistil um þetta á vef Kjarnans og nefnir að þau rök, sem helst hafa verið færð fram um sölu bankanna nú, séu þau að vegna COVID-kreppunnar og aukinnar skuldastöðu ríkisins muni söluandvirðið lækka skuldir ríkisins.
„En ef menn vilja nota bankana til að greiða niður skuldir ríkisins vegna Kóvid kreppunnar þá er önnur leið augljóslega betri. Ríkið leggur um 200 milljarða í beinar mótvægisaðgerðir á árunum 2020 og 2021. Arðgreiðslur út úr ríkisbönkunum í ríkissjóð námu um 207 milljörðum á aðeins fimm árum, frá 2014 til 2018. Pælið í þessu.“
Stefán segir að það muni því væntanlega vera hægt að greiða niður allar skuldir vegna þessara auknu útgjalda á einungis fimm árum eftir að uppsveiflan hefst á ný með arðgreiðslum úr ríkisbönkunum. Spyr hann hvort menn vilji frekar að þetta fé renni í vasa einhverra auðmanna í Sjálfstæðisflokki eða Framsókn og hvort það sé hagur almennings.
„Ef bankarnir verða seldir nú þá fæst ekki raunvirði fyrir þá, frekar en venjulega við einkavæðingu – og ekki nóg til að greiða allan kostnað vegna Kóvid kreppunnar. Til viðbótar þessum 200 milljörðum vegna mótvægisaðgerða hefur ríkið orðið fyrir umtalsverðu tekjutapi í kreppunni, vegna minni skatttekna. Það bætist við ríkisskuldirnar líka.“
Stefán segir að með því að eiga bankana tvo áfram þurfi líklega ekki meira en sjö til tíu ár til að greiða hinar auknu skuldir ríkisins að fullu vegna kreppunnar, með arðgreiðslum af rekstri bankanna í ríkissjóð.
„Nú er því augljóslega rétti tíminn til að eiga bankana áfram og láta þá greiða þennan reikning. Þannig má forðast skattahækkanir og niðurskurð í velferðarmálum og innviðframkvæmdum á næsta áratug.“
Hann segir að þegar búið verður að greiða allan kostnað ríkisins vegna kreppunnar á þennan veg mætti hugsanlega selja hlut úr Íslandsbanka til að greiða fyrir kostnað við byggingu hins nýja Landsspítala – ef þáverandi stjórnvöldum verður treystandi.
„Það hljóta allir að sjá skynsemina í þessu – nema auðvitað þeir sem vilja sjálfir hirða þennan arð úr bönkunum í eigin vasa.“