Stefán með full­komna lausn á Júró­vision-deilunni sem allir eru að rífast yfir: „Svona er ég maður sátta“

Stefán Páls­son, sagn­fræðingur og fram­bjóðandi í for­val VG í Reykja­vík, áttaði sig á því í dag að honum hefur tekist að fara í gegnum síðustu vikur án þess að heyra nein Júró­vi­sjón­lög sem allir eru að rífast yfir.

„Ég er því í full­kominni að­stöðu til að gerast Salómón minnar kyn­slóðar, hlusta á lögin og kveða upp úr um hver hefði átt að vinna. Svona er ég maður sátta í sam­fé­laginu,“ skrifar Stefán í færslu á Face­book en ekki voru allir sáttir með það að Eyþórsdætur unnu á laugardaginn.

Flestir virðast taka á­gæt­lega í þessa hug­mynd Stefáns en þó hlæja flestir að því að fólk sé yfir­höfuð að kvarta undan niður­stöðunni.