Stefán Máni segir frá mögnuðu góðverki Hjálmars – Svona gera bara snillingar

Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson hefur verið í jákvæðnisgír á Twitter-síðu sinni í byrjun nýs árs og hreinlega dælt út hrósum.

Færsla sem hann birti á Twitter-síðu sinni í gær hefur vakið talsverða athygli en þar hrósar hann grínistanum Hjálmari Erni Jóhannssyni. Hjálmar Örn er mörgum að góðu kunnur og hefur hann meðal annars brugðið sér í hlutverk hvítvínskonunnar. Þá heldur hann úti vinsælu hlaðvarpi, Hæ Hæ, ásamt Helga Jean Claessen.

Í færslu sinni segir Stefán Máni að frænka hans hafi eitt sinn auglýst eftir hjálp við flutninga á Facebook. Bætir hann við að Hjálmar hafi svarað kallinu, mætt á staðinn og það þrátt fyrir að hann þekkti hana ekki neitt.

„Hann fékk feitt prik í kladdann hjá mér og ég hef haft mikið álit á honum allar götur síðan,“ segir hann meðal annars.

Hjálmar Örn þakkaði fyrir hrósið í athugasemd undir og sagði einfaldlega: „Takk besti“