Hægri hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur borið af fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta á EM í handbolta.
Sigvaldi er markahæstur íslensku leikmannanna á EM með 18 mörk í þremur leikjum og hefur fengið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína.
Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Logi Geirsson vekur athygli á frammistöðu íslensku hornamannanna í færslu á Twitter.
„Við erum með bestu hornamenn í heimi í sitthvoru horninu. Leyfi mér að fullyrða það eftir að hafa horft á 75% allra leikja mótsins. Tölfræðin bakkar það líka upp. Við erum með rosalegt LIÐ. Held að við sigrum Dani á morgun ef vörnin heldur,“ skrifaði Logi í gær.
Glæpasagnarithöfundurinn Stefán Máni svarar Loga um hæl og segist vera kominn með nýtt nafn á Sigvalda.
„Ég vil að Sigvaldi verði þekktur sem ARKITEKTINN. Listamaður,“ skrifar Stefán Máni.
Ég vil að Sigvaldi verði þekktur sem ARKITEKTINN. Listamaður.
— Stefán Máni (@Stefan_Mani_) January 19, 2022