Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson skýtur á ríkisstjórnina á Twitter-síðu sinni. Fjárlagafrumvarpið var kynnt í gær og þar er gert ráð fyrir því að áfengis- og tóbaksgjald hækki um 2,5% eftir áramót.
Af tísti Stefáns að dæma má ætla að áherslan ætti frekar að vera á aðra þætti, til dæmis þætti sem hinir efnameiri finna meira fyrir en hinir efnaminni.
„Aukin skattheimta á áfengi, tóbak og síðast en ekki síst bensín er lágtekjuskattur. Fyrir fólk með háar tekjur skiptir þetta engu máli. Og lágtekjufólk hefur ekki efni á kaupa sér rafbíl. Hingað til hafa rafbílar aðallega verið keyptir sem dýr leikföng eða annar eða þriðji bíll.“
Aukin skattheimta á áfengi, tóbak og síðast en ekki síst bensín er lágtekjuskattur. Fyrir fólk með háar tekjur skiptir þetta engu máli.
— Stefán Máni (@Stefan_Mani_) December 1, 2021
Og lágtekjufólk hefur ekki efni á kaupa sér rafbíl. Hingað til hafa rafbílar aðallega verið keyptir sem dýr leikföng eða annar eða þriðji bíll