Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson hefur blandað sér í umræðuna um heimsmeistaramótið í Katar og þær fregnir að fyrirliðar liða á mótinu muni ekki bera regnbogaarmbönd til stuðnings réttindabaráttu hinsegin fólks.
Greint var frá því í gær að knattspyrnusambönd Englands, Wales, Belgíu, Þýskalands, Danmerkur, Hollands og Sviss hefðu tilkynnt að fyrirliðarnir myndu ekki bera regnbogaarmbönd. Áður höfðu þau tilkynnt að þau væru reiðubúin að greiða sekt en þegar látið var að því liggja að leikmenn gætu fengið gul og jafnvel rauð spjöld var ákveðið að hlýta reglunum.
Stefán Máni gerir þetta að umtalsefni á Twitter og er ekki sáttur.
„Að banna fyrirliðum að lýsa yfir stuðningi við hinsegin fólk er ekki bara illska og ógeðslegur undirlægjuháttur heldur fyrst og fremst vatn á myllu þeirra sem hata hinsegin fólk og vill helst berja það, svívirða og drepa. Djöfulsins heitasta helvíti. Góðan dag,“ segir hann.
Hringbraut fjallaði í gær um gagnrýni Illuga Jökulssonar, rithöfundar og þjóðfélagsrýnis, á þessu.
„Vandræðagangurinn“ á HM í Katar er kominn út yfir allan þjófabálk. KSÍ hlýtur að kalla allt sitt fólk frá Doha, mótmæla harðlega og neita að taka þátt í starfi FIFA uns það hættir að kúga fótboltamenn sem vilja lýsa yfir stuðningi við réttindabaráttu hinsegin fólks, sem er vitaskuld réttindabarátta okkar allra. Ef KSÍ lætur þetta yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust mun ég aldrei framar mæta á landsleik undir merkjum sambandsins,“ sagði Illugi og tóku margir undir.
Að banna fyrirliðum að lýsa yfir stuðningi við hinsegin fólk er ekki bara illska og ógeðslegur undirlægjuháttur heldur fyrst og fremst vatn á myllu þeirra sem hata hinsegin fólk og vill helst berja það, svívirða og drepa. Djöfulsins heitasta helvíti. Góðan dag.
— Stefán Máni (@Stefan_Mani_) November 22, 2022