Stefán lýsir kostulegu símtali eftir myndbirtingu Morgunblaðsins í gær

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og sérlegur áhugamaður um bjór, er með skemmtilegri mönnum. Stefán var í viðtali við mbl.is í gær þar sem hann ræddi meðal annars þá ákvörðun Birgis Þórarinssonar að færa sig um set úr Miðflokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn.

Ákvörðun Birgis kom mörgum á óvart og telja margir að hann hafi svikið kjósendur Miðflokksins hressilega. En það var ekki það sem vakti mesta athygli í viðtalinu við Stefán því myndin sem birtist með viðtalinu var ekki síður áhugaverð. Þar sást Stefán halda á fullu bjórglasi með útrétta hönd líkt og hann væri að skála. Líklegt má telja að umrædd mynd hafi verið tekin við eitthvað allt annað tilefni en viðtal um íslenska pólitík, en hann hefur meðal annars gefið út ritverk um bjór og haldið námskeið um hann.

Stefán gerði þetta að umtalsefni í skemmtilegum pistli á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann lýsti (ímynduðu) símtali frá „siða- og almannatengsladeild“ Sagnfræðingafélagsins.

Gefum Stefáni orðið:

„(Síminn hringir)

Stefán: „Halló! Sjálfur talar.“

Rödd: „Uh, Stefán. Þetta er siða- og almannatengsladeild Sagnfræðingafélagsins. Það var útaf þessu viðtali við þig í Mogganum...“

Stefán: „Jebb. Var þetta ekki bara helvíti fínt?“

Rödd: „Ja, jú, eða sko við vorum meira að hugsa um myndina.“

Stefán: „Já. Fín mynd. Ég á hins vegar ekki þessa skyrtu lengur. Steinunn lét mig henda henni í síðustu grisjun. Góð skyrta samt.“

Rödd: „Sko, við erum nú meira að hafa áhyggjur af skítaglottinu og bjórglasinu sem þú sveiflar þarna um...“

Stefán: „Öööö... ég skil ekki.“

Rödd: „Við erum að reyna að halda smá standard. Sérstaklega á 50 ára afmælisári félagsins. Hvernig heldurðu að það líti út að þú sért að belgja þig eins og á hádegisbarnum í skyrtu frá Ellingsen?“

Stefán: „Guðsteini reyndar...“

Rödd: „Vottever. En punkturinn er að það er svona kæruleysi sem gerir það að verkum að stjórnmálafræðingarnir fá öll fjölmiðlagiggin. Sæirðu Stefaníu Óskars fyrir þér að sveifla ginblöndu í miðri greiningu á stjórnarmyndunarkostum?“

Stefán: „uuu...“

Rödd: „Eða þennan fyrir norðan... hvað hann nú heitir...“

Stefán: „Áttu við Birgi?“

Rödd: „Já, hann er alltaf próper. Fjölmiðlamenn elska svoleiðis. Þú verður aðeins að hugsa...“

Stefán: „Uh, ókey, ég hafði svo sem aldrei séð þetta sem...“

Rödd: „Og vesti og bindi, svona eins og Eiríkur Bergmann. Hafðu það í huga næst. Sjáumst svo á árshátíðinni á fimmtudaginn. Blessaður.““