„Kreppum fylgja tækifæri og sú sem nú gengur yfir mun ekki verða undantekning í þeim efnum,“ segir Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, í pistli sínum í ViðskiptaMogganum í dag.
Stefán Einar bendir á að vinnumarkaðurinn sé þegar farinn að laga sig að breyttum aðstæðum. Mörg fyrirtæki hafa þurft að grípa til ráðstafana nú þegar samkomubann er í gildi og hafa ófáir starfsmenn þurft að vinna heima hjá sér. Stefán Einar bendir á að tæknin geri sífellt fleirum kleift að sinna vinnunni frá heimili sínu.
„Og þeir sem ekki hafa séð tækifærin í slíkri fjarvinnu hingað til hafa fengið tækifæri til að prófa það sem þeir undir eðlilegum aðstæðum hefðu aldrei gert. Þessi reynsla, góð í mjög mörgum tilvikum, mun gera fyrirtækjum kleift að draga úr kostnaði,“ segir hann.
„Ef 100 manna fyrirtæki sem að öllu leyti treystir á skrifstofurými í starfsemi sinni mun geta lækkað húsnæðiskostnað sinn um 20-25% með því að fá þriðjung starfsmanna sinna til að vinna heima á hverjum tíma. Þeirri auknu framlegð sem sú ráðstöfun skilar geta fyrirtækin skipt á milli sín og starfsmannanna sem þá geta fengið einskonar „leigutekjur“ af vinnustöðvunum heima.“
Stefán Einar segir að þeir sem einu hafa áhyggjur af þessari þróun séu leigusalarnir sem verða ekki eins mikilvægir eftir kreppu og fyrir. „En þar verða einnig ný tækifæri til. Ekki síst fyrir þá sem ná að aðlaga þjónustu sína við leigutaka að þessum breytta veruleika.“