Stefán Jón Hafstein, stjórnmálamaður, fjölmiðlamaður og sitthvað fleira, segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa keypt kjúkling og skellt í ofninn.
Stefán birti mynd og færslu á Facebook-síðu sinni í morgun þar sem hann segir:
„Ég er mjög hlynntur vatni. En. Þegar maður kaupir kjúkling?“
Stefán segist hafa steikt tvo kjúklinga án nokkurs vökva, grænmetis eða krydds. „Bara beint úr pokanum inn í ofn án nokkurs annars. Eftir klukkustund var fatið fleytifullt af óvæntum vökva. 2 bollar af vatni höfðu streymt úr skepnunum. Fylgist enginn með nema ég,“ spyr Stefán Jón.
Í athugasemdum undir færslunni segir Stefán að um hafi verið að ræða kjúkling sem hann keypti í Krónunni og var sérmerktur. Fjölmargir hafa tjáð sig um færsluna og segjast margir hafa orðið varir við þetta þegar kjúklingur er keyptur í verslunum hér á landi.
Stefán segir að hann hafi keypt þennan tiltekna kjúkling og eldað hann ókryddaðan þar sem hann hugðist gefa tíkinni sinni hann. Dýralæknir hefði mælt með því að gefa henni kjúkling til að fríska upp á próteinbúskapinn.
Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og stofnandi Sósíalistaflokksins, blandar sér í umræðuna og segir það fara eftir eldun hversu miklum vökva kjötið skilar af sér. Stefán Jón segist hafa eldað kjúklingana í eldföstu fati og eftir eldun hafi kjúklingurinn verið góður, bæði safaríkur og mjúkur.
Ég er mjög hlynntur vatni. En. Þegar maður kaupir kjúkling? Steikti tvo kjúklinga án nokkurs vökva, grænmetis eða...
Posted by Stefán Jón Hafstein on Miðvikudagur, 20. maí 2020