Stefán Hrafn dæmdi fót­bolta­leik og fékk yfir sig fúk­yrði frá æsku­vini sínum úr stúkunni

Stefán Hrafn Haga­lín, for­stöðu­maður sam­skipta og markaðs­mála hjá Há­skólanum í Reykja­vík, stökk til um helgina með litlum fyrir­vara.

Hann flautar ár­lega um 100 fót­bolta­leiki á ári í elstu ung­linga­flokkunum og er lands­dómari í þokka­legri æfingu en hann var ekki undir­búinn undir það sem æsku­vinur hans öskraði á hann úr stúkunni.

„Stökk til áðan með litlum fyrir­­vara og flautaði jafn­teflis­­leik tveggja hörkuliða. Báðir þjálfarar eftir leik: Takk fyrir vel dæmdan leik. Allir leik­­menn: Takk fyrir leikinn. Æsku­vinur minn og fót­­bolta­­pabbi öskrandi: TAKTU HAUSINN ÚR RASS­GATINU Á ÞÉR, ÞÚ VELDUR ÞESSU EKKI, STEFÁN!,“ skrifar Stefán á Twitter.

Ó­nefndur twitter að­gangur svarar Stefáni og bætir hann við: „ En já, Lalla vini mínum leið ekki nógu vel í kvöld. Það er eins og það er. Aldrei að vita nema maður taki hausinn úr rass­gatinu við tæki­­færi út af þessari góðu hvatningu!“ skrifar Stefán.