Rokkarinn Stefán Jakobsson, oft kenndur við hljómsveitina Dimmu, fer í aðgerð á morgun þar sem þess verður freistað að laga afleiðingar áverka sem hann hlaut eftir líkamsárás árið 2000. Stefán segir frá þessu í færslu á Facebook í kvöld sem vakið hefur talsverða athygli.
Stefán segir í færslu sinni að tólf manns hafi ráðist á hann og veitt honum talsverða áverka.
„Þegar vinir og dyraverðir höfðu tínt af mér árásarmennina tókst mér að komast í skjól. Ég var sannfærður um að hafa sloppið nokkuð vel þar sem ég fann hvergi til. Það átti eftir að breytast. Nefið lá flatt út á kinn, annað augað var alveg lokað, hælfar eftir gönguskó á enninu og skóför frá höfði, niður hægri hlið, allt bakið, fætur og niður á ökkla.“
Stefán segir í færslu sinni að sárin á líkamanum hafi gróið á nokkrum vikum en sárin á sálinni hafi tekið töluvert lengri tíma að gróa – og þau muni kannski aldrei gróa að fullu.
„Öll kærumál þessu tengdu voru felld niður. Meðal annars vegna þess að ég gat ekki sagt með vissu hver olli hvaða áverka og mögulega hafi ég sagt eitthvað sem kom atburðarásinni af stað,“ segir Stefán.
Til marks um andlegar afleiðingar árásarinnar segir Stefán að hann hafi í rúm tvö ár eftir árásina forðast að vera einn á ferli, gengið um í hettupeysu ef hann var einn og gengið hratt með höfuðið niður til að sjást síður. „Ég fór ekki í hraðbanka og aðra staði sem hægt var að króa mig af. Á veitingastöðum og börum valdi ég mér sæti þar sem ég hafði góða yfirsýn og örugga flóttaleið ef ske kynni að einhver hluteigandi skyldi birtast.“
Stefán segir að hótanir um frekari líkamsmeiðingar – og jafnvel líflátshótanir – hafi einkennt þessi rúmu tvö ár meðan kærurnar veltust um milli „gagnslausra“ laganna varða.
Stefán segir að með árunum hafi hann fyrirgefið þessu fólki í huganum. „Sum þeirra voru hreinlega á slæmum stað þegar þessi atburður átti sér stað og eflaust þurft að glíma við marga drauga síðan, einhverjir eru látnir og aðrir eru því miður enn á dimmum stað.“
Stefán fór í aðgerð á nefi árið 2007 þar sem freistað var þess að rétta það af og opna um leið fyrir vinstri nösina sem var nánast alveg lokuð. „Sú aðgerð skilaði ekki tilskyldum árangri og er nösin 80% lokuð enn þann dag í dag. Þetta hefur haft þær afleiðingar að ég stíflast auðveldlega og losna illa við kvef. Ég fæ hausverk út frá þessu fyrir utan það þá háir þetta mér við söng,“ segir hann og bætir við að þeir sem hafa tekið hann upp í gegnum tíðina, til dæmis félagi hans úr Dimmu, bassaleikarinn Silli Geirdal, hafi þurft að eyða talsverðum tíma í að klippa burt blísturshljóð sem heyrðust á stúdíóupptökum.
Stefán kveðst vera á leið í aðgerð á morgun og vonar hann innilega að þetta lagist í þetta sinn.
„Mér finnst erfitt að rifja þetta tímabil upp, en ber samt engan sérstakan kala til þessa fólks sem olli þessum skaða. Þetta var og er reynsla sem hefur gert mig sterkari,“ segir hann og endar færsluna á þessum orðum: „Ást, friður og fyrirgefning er allt sem þarf.“
Þessi fína mynd var tekin af mér síðla árs 2000 Fyrir "miskilning" réðust á mig að ég best veit 12 manns með spörkum þar...
Posted by Stefán Jakobsson on Mánudagur, 22. júní 2020