Stefán fékk undarlegt bréf vegna 12 ára sonar síns

„Pósturinn kom með bréf frá Creditinfo um að tólf ára gamall sonurinn verði nú skráður á lista í áhættuhópi varðandi peningaþvætti og hryðjuverk út á að vera sonur mömmu sinnar.“

Þetta segir sagnfræðingurinn Stefán Pálsson í færslu á Facebook-síðu sinni.

Bréfið sem fjölskyldunni barst er vegna reglugerðar sem tók gildi í desember síðastliðnum, en markmiðið er að verjast hugsanlegu peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Reglugerðin tekur til háttsettra opinberra starfa en í þeim hópi eru til dæmis forseti Íslands, ráðherrar í ríkisstjórninni, þingmenn, varaþingmenn, einstaklingar í stjórnum stjórnmálaflokka, hæstaréttardómarar, landsréttardómarar og fleiri.

Nánasta fjölskylda og nánir samstarfsmenn einstaklinga sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu teljast einnig til einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla.

Maki Stefáns og barnsmóðir er Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, sem hefur setið á þingi frá árinu 2014.

Stefán setur ekki út á það haldið sé utan um þessar upplýsingar með sérstökum hætti en veltir fyrir sér hvers vegna einkafyrirtæki úti í bæ sé fengið til verksins.

„Nú er mögulega hægt að sannfæra mig um skynsemi og gildri slíkrar skráningar og upplýsingaöflunar - en einhvern veginn finnst mér að ef hið opinbera metur það sem svo að þetta sé nauðsynlegt og brýnt þá eigi það að sinna því sjálft en ekki fela það einkafyrirtæki úti í bæ,“ segir Stefán og vísar í umrætt bréf frá Creditinfo.