„Það er skylda stjórnmálamanna að fara vel með sameiginlega sjóði. Endurtekin ferðagjöf er ekki dæmi um það,“ segir Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, í pistli í ViðskiptaMogganum í dag.
Þar gerir Stefán Einar ferðagjöf stjórnvalda í fyrra að umtalsefni en eins og Fréttablaðið greindi frá í gær kemur til greina að gefa aðra ferðagjöf í ár. Málið var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, eftir fundinn að gjöfin í fyrra hafi virkað vel og þess vegna væri til skoðunar að endurtaka leikinn. Útfærslan eigi þó eftir að koma í ljós, hvort leikurinn frá því í fyrra verði endurtekinn eða hvort einhverju þurfi að breyta.
Stefán Einar segir að þegar upplausnin í fyrra var nánast algjör og óvissan mikil hafi lítið annað verið að gera fyrir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra en að opna fjárhirslurnar upp á gátt.
„Allir fjármálaráðherrar heimsins, sem eitthvað áttu aflögu, gripu einmitt til þessa ráðs til þess að koma í veg fyrir að hagkerfin kólnuðu of hratt með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Eitt af því sem sérstaklega þurfti að líta til hér á landi var ferðaþjónustan sem stóð uppi án viðskiptavina. Var talið nauðsynlegt að örva Íslendinga til þess að ferðast innanlands (þá mánuði sem þeir voru ekki beinlínis hvattir til að ferðast innanhúss).“
Stefán Einar segir að ferðaþjónustan hafi farið á taugum í þessu ástandi og farið að bjóða gistinætur og ýmsa afþreyingu undir kostnaðarverði.
„Og niðurgreiðslan varð enn meiri þegar ríkissjóður brá sér í gervi jólasveinsins og með appi færði þjóðinni ferðagjöf – 5.000 krónur sem eyða mátti í gistingu eða bjór á öldurhúsi, allt eftir því hversu langt og ríkmannlega fólk vildi ferðast,“ segir Stefán Einar sem bætir við að sáralítið sé vitað um raunveruleg áhrif þessarar aðgerðar.
Þannig hafi 196 þúsund manns sótt ferðagjöfina og 158 þúsund nýtt sér hana. Fjórðungur hafi farið í afþreyingu, fjórðungur í gistingu, rúmlega þriðjungur í veitingar og restin í samgöngur.
„Nú stígur ráðherra fram og dustar rykið af fyrrnefndum búningi og segir í skoðun að gefa fleiri gjafir af þessu tagi. Rökin fyrir slíkri aðgerð nú eru veikari en fyrir ári. Einkaneyslan hefur ekki reynst vandamálið í kófinu, hún hefur þvert á móti verið á blússandi siglingu. Það er skylda stjórnmálamanna að fara vel með sameiginlega sjóði. Endurtekin ferðagjöf er ekki dæmi um það.“