Stefán Einar: „Það svaka­legasta er að það ber enginn á­byrgð“

Stefán Einar Stefáns­son, frétta­stjóri við­skipta á Morgun­blaðinu, á ekki von á öðru en að Lands­réttur stað­festi dóm héraðs­dóms þess efnis að upp­greiðslu­gjald af lánum Í­búða­lána­sjóðs sé ó­lög­legt.

Dómur þar að lútandi féll fyrir helgi og gæti hann haft veru­leg á­hrif á þúsundir ein­stak­linga sem tóku lán með upp­greiðslu­á­kvæði á árunum 2005 til 2013. Í gær var til­kynnt að dómnum yrði á­frýjað vegna þeirra miklu hags­muna sem eru undir.

„Þetta gjald hefur eðli máls sam­kvæmt lengi verið þyrnir í augum þeirra sem setið hafa undir því. Í­búða­lána­sjóður hefur inn­heimt gjaldið vegna al­var­legra mis­taka sem gerð voru í á­hættu­stýringu sjóðsins. Raunar er rekstur sjóðsins síðustu tvo ára­tugi hið minnsta ein hrika­leg hrak­fara­saga og skatt­greið­endur hafa í­trekað þurft að leggja stofnuninni til gríðar­lega fjár­muni,“ segir Stefán Einar í pistli á bak­síðu við­skipta­blaðs Morgun­blaðsins í dag.

Stefán Einar vísar í grein Ara Guð­jóns­sonar lög­fræðings í sama blaði í dag þar sem hann bendir á að ef dómur héraðs­dóms stendur ó­ra­skaður gæti það kallað milljarða­tjón yfir ríkis­sjóð og þar með skatt­greið­endur. Það eru ekkert sér­stök tíðindi í því á­standi sem nú ríkir.

„En það svaka­legasta í þessu máli öllu er að það ber enginn á­byrgð. Að­eins skatt­greið­endur sem axla á­byrgð vegna mis­taka opin­berra starfs­manna sem falin var á­byrgð og þeir risu ekki undir. Enginn þeirra mun axla á­byrgð, og enginn þeirra mun hafa fyrir því að biðjast fyrir­gefningar á glap­ræðinu. Þeim er ef­laust sama, þeir fengu allir sitt.“